hellu, í gær
byrjaði ég í nýju vinnunni minni og leist voða vel á
.. ég
verð sem sagt í deild sem heitir úrvinnsla og er svona pjura
skrifstofujobb... en ég held samt að þetta verði mjög
skemmtilegt því að stelpurnar sem eru að vinna með mér
eru allar mjög hressar og mikið hlegið. á vinnustaðnum
vinna 50 konur og 1 karlmaður. hvað segja kvenremburnar
núna
..
þar sem að í dag er
frídagur þá var stefnan tekin á litla heita laug rétt hjá sólheimum
og hún heitir því skrítna nafni hraunalaug... eða
hraunalaugalaug... hmm, það skín í gegn að ég man ekki hvað hún
heitir, en jæja. hún var voða sæt og með svona mannagerðu
kari sem var víst upphaflega ætlað fyrir kindur að baða sig.
tilgangurinn með því er ekki alveg á tæru en eflaust hefur hann
verið einhver.
á laugardaginn þá er
útskriftardagurinn mikli.. ég ákvað að fara ekki eftir
skoðanakönnuninni og gefa ástþóri bók um hekl heldur þá keypti ég
svona myndabók
svo verð ég að segja
frá því að hann bjarni kallinn fékk skoðun á þriðjudaginn...
stór dagur í lífi hans. nottla búið að vera að reyna að koma
honum í gegnum skoðun síðan það var klárað að
smíðann.